Sagan
Í meginatriðum gengur hugmyndin um Heimskautsgerðið út á að tengja íslenska menningu, bókmenntasögu og sígild vísindi saman við sérstæðar umhverfisaðstæður á norðurhjara landsins. Útkoman er áhrifaríkt sjónarspil. Heimskautsgerðið á Raufarhöfn er samfélagslegt verkefni íbúa á norðausturhorni Íslands. Stjórnarmenn hafi í gegnum tíðina unnið mikið og óeingjarnt sjálfboðastarf.
Heimskautsgerðið er stærsta útilistaverk á Íslandi og rís á Melrakkaás við Raufarhöfn sem er nyrsta kauptún landsins. Þar er dagurinn hvað lengstur á sumrin og stystur á veturna. Í kringum sumarsólstöðurnar sest sólin ekki í nokkrar vikur. Birtan er einstök og sökum hve landið er lágt þá skyggir ekkert á sjóndeildarhringinn í heilar 360 gráður en fyrir vikið nýtur sólin sín allt árið frá sólrisi til sólseturs
Heimskautsgerðið er um 50 metrar í þvermál en 6 metra há hlið vísa til höfuðáttanna. Í miðju hringsins er 10 metra há súla á fjórum stöplum sem áform eru uppi um að skarti kristaltoppi sem brýtur sólarljósið og varpar geislum sólar um allt Heimskautsgerðið. Allt grjót sem er notað í hleðsluna kemur úr grjótnámu Raufarhafnarhrepps en stærstu steinarnir vega allt að 3 tonn.
Verkið er sprottið upp úr vangaveltum Erlings B. Thoroddsen um hvernig hægt er að virkja endalausa víðáttu þar sem ekkert skyggir á sjóndeildarhringinn, heimskautsbirtuna og miðnætursólina. Heimskautsgerðið er í senn sólúr, leikur að ljósi og sambland fornsögu- og menningarlegra hugmynda þar sem goðsögulegur hugarheimur og dvergatal Völuspár og Snorra Eddu koma við sögu. Utan um þennan hugarheim rís Heimskautsgerðið á Melrakkaási við Raufarhöfn. Haukur Halldórsson listamaður tók þátt í hugmyndavinnu með Erlingi og gerði skyssur og líkan sem stuðst er við.
Hugmyndin um heimskautsgerðið við Raufarhöfn sækir að nokkru leyti innblástur til þess merka og heimsþekkta mannvirkis á Englandi, einkum fyrir ákveðnar hliðstæður í verklegri uppbyggingu mannvirkjanna. Önnur hliðstæða er þó ekki síður sýnileg: Heimskautsgerðið við Raufarhöfn er nefnilega ein af þessum hugmyndum sem útheimtir dálitla hugdirfsku og bjartsýni umfram það sem almennt er, rétt eins og var með Stonehenge fyrir þessum árþúsundum.
Sjónarspil ljóss og skugga varð til þess að Erlingur Thoroddsen, sem var hótelstjóri á Raufarhöfn, fór að velta því fyrir sér hvernig hægt væri að ná utan um þessa ótrúlegu víðáttu og lýsingu sem norðausturhornið hefur upp á að bjóða, og nýta í þágu ferðaþjónustu.
Fyrstu hugmyndirnar voru að afmarka eyktarmörkin með sólúri og nýta áhrif miðnætursólarinnar til að magna upp áhrifin. En hvernig sem það var uppsett og skoðað þá buðu aðstæður á Melrakkasléttu upp á eitthvað ennþá öflugra. Vangaveltur hans um það hvernig hægt væri að virkja endalausa víðáttu, þar sem ekkert skyggir á sjóndeildarhringinn, heimskautsbirtuna og miðnætursólina, urðu að samtali við ýmsa aðila, vísindamenn, framkvæmdamenn, hugsuði og listamenn og í kjölfarið þróaðist hugmyndin. Það er svo þegar Erlingur viðrar hugmyndir sínar við Hauk Halldórsson, myndlistarmann, sem hlutirnir fara að taka á sig mynd, rétt eftir aldamótin.
Það er ekki eingöngu áhersla á sólarljósið og birtuna í Heimskautsgerðinu heldur er um að ræða einskonar samruna nútíðar og fornnorrænnar menningar. Dvergatal Völuspár sést í nýju hlutverki og er búið að dusta rykið af fornum sagnaheimi Snorra Eddu og færa til nútíðar.
Í Völuspá er upptalning á dvergunum í vísum 9 til 16 og hefur sú upptalning verið kölluð dvergatalið. Heimskautsgerðið tvinnar saman tilvist dverganna við leikinn með sólarljósið og finnur þeim nýtt hlutverk.
Í dvergatalinu er upptalning á dvergum, eins og áður segir, en hlutverk dverganna er óljóst, að þeim Austra, Vestra, Norðra og Suðra undanskildum, sem halda uppi himninum. Í hugmyndafræði Heimskautsgerðisins hefur dvergunum aftur á móti verið gefið hlutverk og þeir verið persónugerðir. Ábendingar bárust frá sérfræðing Þjóðskjalasafns Íslands um að í skrifum Finns Magnússonar, leyndarskjalavarðar í Kaupmannahöfn, nefnir hann að nöfn dverganna séu vísun til árstíða. Þ.e. að dvergarnir í Völuspá tengist árhringnum. Í framhaldi af því verður árhringur dverga til.
Árhringur dverga kemur til með að vera inni í gerðinu sjálfu, steinar sem hver um sig tákna ákveðinn dverg. Þessir dvergar eru alls 72 talsins. Vifri er til að mynda einn dverganna, hann er sá sem litar mörgum litum og er staðsettur í samræmi við það í árhringnum. Nöfn þeirra falla vel að árstíðum eins og lesa má í Snorra-Eddu og Völuspá. Vetrarfaðir sem lendir á fyrsta vetrardegi, Várkaldur í viku vors, Bjartur í viku sumars þegar nætur eru bjartar og Dvalinn í haustviku þegar allt leggst í dvala fyrir veturinn.Þeim hefur verið raðað inn í árið þannig að hver vika spannar 5 daga. Dvergarnir eru svo hluti af tímabilum goðanna sem eru gömlu mánuðirnir. Þegar á árið er litið sést að það eru 6 dvergar sem tilheyra hverjum mánuði, eins og þeir voru, og hver mánuður tilheyrir ákveðnu goði. Úr verður einsskonar dverga-dagatal. Þannig er hægt að tengja dvergana við afmælisdaga og mynda tengsl við þá.
Í verkinu er stuðst við heimildir en þær stílfærðar að gerðinu. Þá er rétt að nefna að í verkinu er ekki farið í einu og öllu eftir óyggjandi söguskýringum eða bóklegum heimildum um dverga, tímatali eða öðrum þáttum sem nýttir eru.
Náttúran
Melrakkaslétta er kunn fyrir hlunnindi, fiskveiðar, fjörubeit, æðarvarp, eggjatöku og gjöful veiðivötn. Þarna er einstök náttúrufegurð á vorin og á sumarkvöldum og fjölskrúðugt fuglalíf. Allt um kring er stórbrotin náttúra og fallegar gönguleiðir.
Á varptíma er fólk beðið um að ganga varlega um og taka tillit til fuglalífsins. Á varptíma getur verið gott að hafa prik, húfu eða hjálm til að verjast kríunni en hún hefur tekið að sér eftirlitshlutverk hér eins og víða annarsstaðar. Passið ykkur að stíga ekki á hreiður.
Á svæðinu er fjölbreytt flóra og ýmsar tegundir að finna; holtasóley, blóðberg, klófíflar, hreindýramosi, loðvíðir, vetrarkvíðastör, aðalbláberjalyng, grámosi, týsfjóla, krækilyng, fjallavíðir, fölvakarta, geldingahnappur, engjarós, héluvorblóm, stjörnusteinbrjótur og hjartatvíblaðka, svo eitthvað sé nefnt.
Á Raufarhöfn og á Melrakkasléttu starfar Rannsóknarstöðin Rif.
Frá stofnun hefur verið unnið að eftirfarandi framtíðarsýn:
Rannsóknastöð á Raufarhöfn verði helsti vettvangur rannsókna á vistkerfi norðurslóða á Íslandi. Stöðin verði alþjóðlegur miðpunktur rannsókna sem tengja saman málefni norðurslóða og náttúrufars á norðausturhorni Íslands, einkum Melrakkasléttu. Með þessu verði rannsóknastöðin virkur þátttakandi í allri umræðu um vistkerfi norðurslóða og áhrif loftslagsbreytinga.
Á heimasíðu sem og facebook síðu stofnunarinnar má fylgjast með áhugaverðum hlutum.
Sólargangur
Raufarhöfn liggur næst heimskautsbaug allra þéttbýlisstaða á landinu. Þar er dagurinn hvað lengstur á sumrin og stystur á veturna og sólin sest ekki í nokkrar vikur í kringum sólstöðurnar. Birtan er einstök og sökum hve landið er lágt þá skyggir ekkert á sjóndeildarhringinn í heilar 360 gráður en fyrir vikið nýtur sólin sín allt árið frá sólrisi til sólseturs.
Í dag vitum við nákvæmlega hvar sólinn er að hverju sinni, í það og það skiptið á árinu. Þannig er hægt að leika sér að ljósi og skuggum á margvíslegan hátt í Heimskautsgerðinu. Hvort sem það er að vetri til eða að sumri til.
Það er og verður stórkostleg upplifun að standa inni í steinhringnum og horfa til himins á vetrar nóttum en stjörnuhimininn er breytilegur eftir árstíðum eða eftir því hvernig vetrarbrautin liggur yfir gerðinu. Mörg náttúrufyrirbrigði koma til með að njóta sín, tungl, sól, norðurljós, stjörnur og sjálf vetrarbrautin.
Þarna verður upplagt að fylgjast með öllum þeim viðburðum sem verða á himninum á ári hverju svo ekki sé minnst á þegar um sólmyrkva eða aðrar stjarnfræðilega stórviðburði er að ræða.
Framkvæmdir
Hliðin, Austri, Vestri, Norðri og Suðri eru komin upp. Í miðju hringsins er 10 m. há súla sem áform eru uppi um að skarti kristaltoppi sem brýtur sólarljósið og varpar geislum sólar um allt Heimskautsgerðið. Súlan hvílir á fjórum stöplum en bilin á milli stöplanna vísa að hliðunum fjórum, Norðra, Austra, Suðra og Vestra. Fyrir vikið birtist miðnætursólin í gegnum bilið sem snýr að norðurhliðinu. Hana má nota sem áttavita. Hliðin á milli stöplanna vísa mót höfuðáttunum, þannig að miðnætursólin sést frá suðurhliði gegnum miðsúlu og norðurhlið, á sama hátt og sólarupprás sést frá vesturhliði í gegnum miðsúlu og austurhlið. Hleðslan flýtur í geislum miðnætursólarinnar við sólris og sólsetur á öðrum tímum ársins. Samspil ljóss og skugga sýnir eyktamörkin.
Fjóra skúlptúrar munu prýða Heimskautsgerðið, hver með sínu sniði. Altæri elds og vatns verður settur upp 2025 fyrir tilstilli styrks frá ríkissjóði.
- Pólstjörnubendir (NV) vísar á Pólstjörnuna. Pólstjarnan hefur verið helsti vísir sjófarenda og þeirra sem ferðast um ókunn lönd í gegnum aldirnar þar sem hún er alltaf á sama stað á næturhimni og vísar í norður. Þegar stafræna kerfið hrynur verður gott að hafa fastan punkt til að endurstilla það.
- Altari elds og vatns (NA) endurspeglar frumkraftana eld og vatn sem leika stórt hlutverk í öllum trúarbrögðum. Hér verður altari þar sem eldur logar og vatn er í skál. Virðing fyrir þessum kröftum skapar trú og getur flutt fjöll. Hér getur fólk komið og hugleitt, óskað sér eða beðist fyrir, hvaða trú sem það aðhyllist.
- Hásæti sólar (SV) þar sem birtan í ákveðinni stöðu boðar sumarkomu. Hér verður vefmyndavél beint að sætinu og slóð þar sem hægt er að heilsa upp á vini og vandamenn um allan heim. Ferðalangur getur hringt í fjarstadda ættingja og átt við þá samskipti til dæmis við glitrandi miðnætursólina.
- Geislakór (SA) er þröngur kór á milli 6 hárra stöpla. Hægt verður að fara inn í kórinn , einn og einn í senn, setjast á sæti í miðjum kórnum, tæma hugann og fá orku úr steinunum. Sá sem fer inn í kórinn kemur út betri manneskja.
Markmiðið hefur verið að taka hvern áfanga fyrir sig en framvindan byggir á því fjármagni sem stjórnin hefur hverju sinni. Síðustu ár hefur áhersla verið á aðkomu þ.e bílastæði, göngustíginn veginn, vatn og rafmagn.
Göngustígurinn / göngubrúin sem gengið er eftir frá bílastæðinu heitir Bifröst. Bifröst er samkvæmt fornsögunum, brúin milli Miðgarðs (mannheima) og Ásgarðs (goðheima). Brúin birtist mönnunum sem regnbogi og því oft kölluð regnbogabrúin. Í íslenskri menningu er sterk tenging við Goðafræði og menningu þjóðarinnar. Það má sjá t.d. í nöfnum á götum, húsum, stöðum, fyrirtækjum, íþróttafélögum og fólki, sem og orðatiltækjum.
Á Raufarhöfn eru alltumlykjandi tengingar við goðafræðina.
Heimskautsgerðið stefnur á Melrakkaási. Í suðurátt eru ásarnir Nónás, Miðás og Bæjarásr. Félagsheimili Raufarhafnar heitir Hnitbjörg, félag eldri borgara er með aðsetur í Breiðabliki, ungmennafélag þorpsins heitir Austri og svo mætti lengi telja. Líttu í kringum þig og sjáðu hvort þú þekkir fleiri örnefni úr Goðafræðinni í umhverfinu.