Viðburðir


Skipuleggðu viðburð eða brúðkaup í Heimskautsgerðinu

Heimskautsgerðið er einstakur vettvangur fyrir viðburði af öllum stærðum og gerðum. Hvort sem þú vilt skipuleggja kraftakeppni, risa tónleika, eða persónulegan viðburð, erum við hér til að aðstoða. Hafðu samband við okkur til að ræða hugmyndir og kanna möguleikana.
Í september 2023 voru haldnir tónleikar með hljómsveitinni Skálmöld. Í aðdraganda þeirra var tekin upp heimildarmynd sem er aðgengileg hér. Einnig voru tónleikarnir sjálfir teknir upp og sýndir á RÚV.

Brúðkaup í einstöku umhverfi

Dreymir þig um ógleymanlegt brúðkaup í stórbrotinni náttúru? Heimskautsgerðið, staðsett rétt við heimskautsbauginn, er fullkominn staður þar sem ástin og náttúran mætast. Umvafin stórkostlegu landslagi og einstökum sögum, býður staðurinn upp á óviðjafnanlegan bakgrunn fyrir brúðkaupsdaginn þinn.

Nálægir áhugaverðir staðir

Ef þú vilt kanna fleiri áhugaverða staði í nágreninu getum við aðstoðað með tillögur og leiðbeiningar.

Hafðu samband við okkur til að fá frekari upplýsingar og sjá hvernig við getum hjálpað þér að gera draumaviðburðinn að veruleika.